Um Okkur

Upphafið

Þetta byrjaði árið 2018 þegar Fannar starfaði hjá Icelandair og útvistaði starfsemi til Filippseyja. Það lærðist fljótt að hæfnin og gæðin væru framúrskarandi þar. Það þótti ekki nema sanngjarnt að bjóða fleiri fyrirtækjum á Íslandi að útvista og lækka þar með kostnað en um leið auka gæðin.

Sagan

Það var þó ekki fyrr en árið 2022 sem samstarfið hófst á milli Fannars og LogixBPO. Covid og barneignir höfðu sitt að segja en um leið og tími gafst þá hófst þessi frábæra vegferð. LogixBPO bíður okkar viðskiptavinum upp á hágæða aðstöðu og allan búnað sem þarf til að starfa fyrir íslensk fyrirtæki.

Frá einum viðskiptavin og tveimur starfsmönnum upp í 12 viðskiptavini og rúmlega 30 starfsmenn á rúmum þremur árum sýnir að þessi lausn er góð og hefði þessi árangur ekki náðst nema með besta fólkinu okkar á Filippseyjum. Þau eru einfaldlega betri en aðrir í svo mörgu.

Við erum sannfærð um að fólkið okkar geti aukið árangur ykkar

34

12

Starfsmenn í fullu starfi

Það eru 34 starfsmenn að starfa fyrir íslensk fyrirtæki dags daglega í gegnum okkur.

Fyrirtæki viðskiptum

Tólf fyrirtæki á stuttum tíma sýnir að þörfin fyrir svona hagkvæma og betri lausn er mikil.

Fjöldi ára á Íslandi

Í átta ár hefur Fannar verið viðloðinn útvistun og þekkir það einna best á Íslandi.

8

Hvað bjóðum við Upp á?

Framúrskarandi hæfni

Fólkið okkar á Filippseyjum talar framúrskarandi ensku. Það er háskólamenntað og margra ára reynslu í þeim störfum sem við ráðum í.
70% lægri kostnaður fyrir betri hæfni og meiri reynslu en fæst á Íslandi í dag.

Þekkingin

Flest af okkar starfsfólki starfar í þjónustu - og sölustörfum. Þar á eftir kemur fólk sem starfar í IT og hönnunargeiranum.

Við störfum á þínum vinnutíma

Dag-, kvöld-, nætur-, eða helgarvaktir skipta okkur ekki máli. Við vinnum á þeim tíma sem hentar þínum rekstri best.

Hafðu Samband

Hvort sem þú ert með spurningar eða óskar eftir samstarfi þá filtu út formið hér fyrir neðan og við höfum samband um hæl.